Mál í kynningu


24.10.2014

Kísilverksmiðja Thorsil í Helguvík

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

Kynningartími stendur til 5. desember 2014

Mannvit hf hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um ofangreinda framkvæmd.

Tillaga að framkvæmdinni og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 23. október til 5. desember 2014 á eftirtöldum stöðum: Bókasafni Reykjanesbæjar, bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar, í Þjóðarbókhlöðunni og á Skipulagsstofnun.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 5. desember 2014 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 108 Reykjavík.  Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.

Hér má skoða frummatsskýrsluna.