Mál í kynningu


24.6.2015

Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði, Árneshreppi

Tillaga að matsáætlun í kynningu

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 13. júlí 2015

Vesturverk ehf. hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna Hvalárvirkjunar í Ófeigsfirði í Árneshreppi. Tillaga að matsáætlun liggur frammi til kynningar frá 24. júní til 13. júlí 2015 hjá Skipulagsstofnun og á heimasíðu Verkís. Allir hafa rétt til að kynna sér tillöguna og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 13. júlí 2015 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 105 Reykjavík. Unnt er að nálgast tillöguna hér.