Mál í kynningu


2.7.2015

Landfylling í Elliðaárvogi í Reykjavík

Tillaga að matsáætlun í kynningu

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 21. júlí 2015

Reykjavíkurborg hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna landfyllingar í Elliðaárvogi. Tillagan liggur frammi til kynningar frá 2. til 21. júlí 2015 hjá Skipulagsstofnun og á heimasíðu Mannvits hf.. Allir hafa rétt til að kynna sér tillöguna og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 21. júlí 2015 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 105 Reykjavík. Unnt er að nálgast tillöguna hér.