Mál í kynningu


3.5.2010

Álver, virkjanir og háspennulínur - kynningarfundir í dag, mánudaginn 3. maí

Frummatsskýrslur um umhverfisáhrif álvers Alcoa á Bakka við Húsavík, Kröflvirkjunar II, Þeistareykjavirkjunar og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka eru í kynningu, auk frummatsskýrslu um mat á sameiginlegum umhverfisáhrifum framkvæmdanna fjögurra.

Opið hús, þar sem framkvæmdaraðilar munu kynna frummatsskýrslurnar, verður á eftirtöldum stöðum:

Í Ýdölum, Aðaldal, mánudaginn 3. maí frá kl. 15 til 18
Á Fosshótel Húsavík mánudaginn 3. maí frá kl. 20 til 23
Í Reykjahlíðarskóla, Mývatnssveit, þriðjudaginn 4. maí frá kl. 16 til 19
Á hótel Hilton Reykjavík Nordica, mánudaginn 10. maí 2010 frá kl. 15 - 19

Skipulagsstofnun hvetur fólk til að kynna sér frummatsskýrslurnar en þær eru aðgengilegar til 14. júní 2010 á eftirtöldum stöðum:
Á skrifstofum Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar, í stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík og bókasafni Húsavíkur, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.
Einnig er hægt að nálgast frummatsskýrslurnar og viðauka á heimasíðum Landsnets:www.landsnet.is, Landsvirkjunar:www.lv.is, Þeistareykja ehf.:www.theistareykir.is, Alcoa:www.alcoa.is og Mannvits: mannvit.is og heimasíðu Skipulagsstofnunar www.skipulag.is.

Athugasemdir við frummatsskýrslur skulu vera skriflegar. Þær má senda í tölvupósti á netfangið: skipulag@skipulag.is eða með símbréfi í númerið: 5954165 eða með hefðbundnum pósti til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166 150 Reykjavík. Frestur til að senda athugasemdir er til og með 14. júní 2010.