Mál í kynningu


30.4.2010

Frummatsskýrslur í kynningu: álver á Bakka, Þeistareykjavirkjun, Krafla II og háspennulínur milli álvers og virkjananna

Hafin er kynningartími fyrir frummatsskýrslur vegna álvers Alcoa á Bakka við Húsavík, allt að 200 MW Þeistareykjavirkjunar, allt að 150 MW Kröfluvirkjunar II og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka við Húsavík.

Landsvirkjun, Þeistareykir ehf., Landsnet og Alcoa hafa tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslur um Kröfluvirkjun II, Þeistareykjavirkjun, Háspennulínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka, álver á Bakka og sameiginlegt mat þessara framkvæmda.
Tillögur að ofangreindum framkvæmdum og skýrslur um mat á umhverfisáhrifum liggja frammi til kynningar frá 30. apríl til 14. júní 2010 á eftirtöldum stöðum:
Á skrifstofum Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar, í stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík og bókasafni Húsavíkur, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.

Matið tekur til:
1. Kröfluvirkjunar II allt að 150 MWe jarðhitavirkjunar, Skútustaðahreppi. Hér má skoða frummatsskýrslu um Kröfluvirkjun II.
2. Þeistareykjavirkjunar allt að 200 MWe jarðhitavirkjunar, Þingeyjarsveit og Norðurþingi. Hér má skoða frummatsskýrslu um Þeistareykjavirkjun.
3. Háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka við Húsavík, jarðstrengs frá Bjarnarflagi að Kröflu, Skútustaðahreppi, Þingeyjarsveit og Norðurþingi. Hér má skoða frummatsskýrslu um háspennulínur (220kV) frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka við Húsavíki.
4. Álvers Alcoa á Bakka við Húsavík, Norðuþingi, ársframleiðsla allt að 346.000 tonn. Hér má skoða frummatsskýrslu um álver Alcoa, allt að 346.000 tonn, á Bakka við Húsavík
5. Sameiginlegs mats framkvæmda 1-4. Hér má skoða frummatsskýrslu um sameiginlegt mat: Álver á Bakka, háspennulínur og virkjanir í Kröflu og á Þeistareykjum.

Opið hús, þar sem framkvæmdaraðilar munu kynna frummatsskýrslurnar, verður á eftirtöldum stöðum:

Í Ýdölum, Aðaldal, mánudaginn 3. maí frá kl. 15 til 18
Á Fosshótel Húsavík mánudaginn 3. maí frá kl. 20 til 23
Í Reykjahlíðarskóla, Mývatnssveit, þriðjudaginn 4. maí frá kl. 16 til 19
Á hótel Hilton Reykjavík Nordica, mánudaginn 10. maí 2010 frá kl. 15 - 19

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdirnar og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 14. júní 2010 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Einnig má senda athugasemdir í símbréfi í nr. 5954165 eða með tölvupósti á netfangið skipulag@skipulag.is.