Mál í kynningu


10.3.2010

Auglýsing um skipulag - Árneshreppur

Auglýsing um aðalskipulag Árneshrepps 2005-2025. Samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að Aðalskipulagi Árneshrepps 2005-2025.


Skipulagsuppdrættir, greinargerð, umhverfisskýrsla og skýrslur vegna fornleifaskráningar liggja frammi á skrifstofu Árneshrepps á Norðurfirði frá 9. mars 2010 til 6. apríl 2010. Ennfremur verða gögnin aðgengileg á heimasíðunni www.litlihjalli.it.is og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík. Athugasemdum skal skila skriflega til skrifstofu Árneshrepps á Norðurfirði, merkt aðalskipulag, fyrir 27. apríl 2010. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni. 9. mars 2010.

Oddviti Árneshrepps, Oddný S. Þórðardóttir