Mál í kynningu


9.6.2010

Líparítvinnsla í Hvalfirði, Hvalfjarðarsveit

Kynning frummatsskýrslu til athugunar

  • Hvalfjordur

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 3. maí til 22. júní 2010 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu UMÍS: www. umis.is.

Umhverfisráðgjöf Íslands ehf., f. h. Sementsverksmiðjunnar á Akranesi, hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Líparítvinnslu í Hvalfirði.
Hér er tengill á frummatsskýrsluna.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 22. júní 2010 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000 með síðari breytingum.
Skipulagsstofnun