Mál í kynningu


24.6.2010

Auglýsing um skipulag - Fjallabyggð

Bæjarstjórn Fjallabyggðar auglýsir hér með tillögu að nýju aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028 ásamt umhverfisskýrslu samkv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Tillagan sem nær til alls sveitarfélagsins er sett fram í aðalskipulagsgreinargerð, umhverfisskýrslu, þéttbýlisuppdrætti í mælikvarða 1:10.000 og sveitarfélagsuppdrætti í mælikvarða 1:100.000.
Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði og Ólafsvegi 4, Ólafsfirði frá kl. 9.00-12.00 og 13.00-15.00 alla virka daga frá og með miðvikudeginum 23. júní 2010 til og með miðvikudagsins 21. júlí 2010. Jafnframt er tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Skriflegar athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist eigi síðar en kl: 15.00 miðvikudaginn 4. ágúst 2010.
Skila skal athugasemdum og ábendingum á bæjarskrifstofu Fjallabyggðar Gránugötu 24, Siglufirði eða Ólafsvegi 4, Ólafsfirði.
Hver sá sem eigi gerir athugasemdir fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

Skipulags- og byggingarfulltrúi Fjallabyggðar.