Mál í kynningu


30.8.2010

Auglýsing um skipulag - Borgarbyggð

Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010 – 2022

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt að auglýsa tillögu að aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 - 2022 skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum ásamt umhverfisskýrslu skv. 4. mgr. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.

Aðalskipulagstillagan og umhverfisskýrslan verða til sýnis í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi, frá 30. ágúst til 27. september 2010. Gögnin eru einnig aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar, www.borgarbyggd.is og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.

Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir. Athugasemdir ef einhverjar eru, skulu vera skriflegar og berast Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi eigi síðar en 11. október 2010.

Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

 

Jökull Helgason,
skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar