Mál í kynningu


19.10.2010

Frummatsskýrsla í kynningu - efnistaka í Bolaöldum í Ölfusi

Frummatsskýrsla í kynningu

Frestur til þess að gera athugasemdir við tillöguna er til 2. desember 2010

Efla verkfræðistofa, f.h. Bolaalda ehf., hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um efnistöku í Bolaöldum í Ölfusi, Sveitarfélaginu Ölfusi. 

Tillaga að neðangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum liggja frammi til kynningar frá 20. október til 2. desember 2010 á eftirtöldum stöðum: Á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss, Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.  Frummatsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu Eflu verkfræðistofu.: www.efla.is.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 2. desember 2010 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.  Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.

Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000 m.s.b.