Mál í kynningu


16.2.2011

Vestfjarðarvegur (60) milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði, Reykhólahreppi og Vesturbyggð

Tillaga að matsáætlun í kynningu

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 9. mars 2011

Vegagerðin hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna Vestfjarðarvegar milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði, Reyhólahreppi og Vesturbyggð. Tillagan liggur frammi til kynningar frá 16. febrúar til 9. mars 2011 hjá Skipulagsstofnun.  Tillöguna er unnt að nálgast á heimasíðu Vegagerðarinnar: www.vegagerdin.is

Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 9. mars 2011 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.  Unnt er að nálgast tillöguna hér.