Mál í kynningu


25.7.2011

Vestfjarðavegur (60) milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði

Mat á umhverfisáhrifum - athugun Skipulagsstofnunar

Kynningartími stendur frá 26. júlí til 6. september 2011

 

Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um vegagerð á Vestfjarðarvegi milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði, Reykhólahreppi og Vesturbyggð.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 26. júlí 2011 til 6. september 2011 á eftirtöldum stöðum: Á bæjarskirfstofu Reykhólahrepps, bæjarskrifstofu Vesturbyggðar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.  Frummatsskýrslu má nálgast hér.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 6. september 2011 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.  Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.