Mál í kynningu


27.12.2011

Auglýsing um tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2003-2015, hesthúsasvæði Fákafells, Grundarfjarðarbæ

Bæjarstjórn Grundarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 15. desember 2011 að auglýsa tillögu að breytingunni skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér stækkun á hesthúsasvæðinu úr 3 ha í 9 ha. Við það breytist um 6 ha óbyggt svæði í opið svæði til sérstakra nota. Samhliða auglýsingu á aðalskipulagi er auglýst nýtt deiliskipulag af svæðinu.

Tillaga að deiliskipulagi hesthúsasvæðis Fákafells, Grundarfirði.
Bæjarstjórn Grundarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 15. desember 2011 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagisamhliða auglýsingu á breytingu á aðalskipulagi, skv. 41. gr.skipulagslaga nr. 123/2011. Í tillögunni stækkar hesthúsasvæðið í samræmi við aðalskipulagsbreytinguna. Þegar hafa verið reist 10 hesthús á svæðinu og er gert ráð fyrir 7 lóðum í viðbót fyrir hesthús og einni lóð fyrir reiðhöll í deiliskipulaginu.

Tillögurnar ásamt greinargerðum,verða til sýnis á bæjarskrifstofu Grundarfjarðarbæjar, Grundargötu 30, á skrifstofutíma, frá og með fimmtudeginum 22. desember nk. til og með 2. febrúar 2012. Einnig munu tillögurnar verða aðgengilegar á heimasíðu bæjarins www.grundarfjordur.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar til og með 2. febrúar 2012. Skila skal skriflegum athugasemdum til umhverfisnefndar bæjarins á bæjarskrifstofu Grundarfjarðarbæjar, Grundargötu 30, 350 Grundarfirði.Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna, teljast henni samþykkir.


Grundarfirði, 17. desember 2011
Skipulags- og byggingarfulltrúi Grundarfjarðarbæjar