Mál í kynningu


2.2.2012

Auglýsing um tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, flutningslínur raforku og tengivirki við Kífsá

 

Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í tillögunni er gert ráð fyrir nýrri háspennulínu, Blöndulínu 3, tengivirki við Kífsá og háspennustrengjum að tengivirki á Rangárvöllum og þaðan að Krossanesi.

Tillöguuppdráttur með greinargerð og umhverfisskýrslu mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 1. febrúar til 15. mars 2012, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar, www.akureyri.is/skipulagsdeild.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00 fimmtudaginn 15. mars 2012 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð og/eða í tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar.