Mál í kynningu


13.8.2012

Þríhnúkagígur í Kópavogsbæ

Mat á umhverfisáhrifum - athugun Skipulagsstofnunar

Kynningartími stendur frá 9. ágúst til 21. september 2012

Þríhnúkar ehf. hafa tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um framkvæmdir vegna aðgengis að Þríhnúkagíg í Kópavogsbæ.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 9. ágúst til 21. september 2012 á eftirtöldum stöðum: Á bæjarskrifstofum Kópavogs, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrsluna má skoða hér.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 21. september 2012 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.