Mál í kynningu


27.8.2012

Auglýsing um breytingu á Aðalskipulagi Laugardalshrepps 2000-2012 innan þéttbýlis á Laugarvatni í Bláskógabyggð

Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt eftirfarandi tillaga að breytingu á aðalskipulagi: Breyting á Aðalskipulagi Laugardalshrepps 2000-2012 innan þéttbýlisins á Laugarvatni. Endurskoðun landnotkunar til samræmis við tillögu að deiliskipulagi.


Skipulagstillagan liggur frammi til kynningar á skrifstofu sveitarfélagsins og skrifstofu skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá 9-16. Að auki er hægt að nálgast tillöguna sjálf http://www.sveitir.is/skipulagsfulltrui/auglysingar/. Tillagan er í kynningu frá 23. ágúst til 5. október 2012. Athugasemdir þurfa að berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 5. október 2012. Athugasemdir skulu vera skriflegar.

 

Pétur Ingi Haraldsson
skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps.