Mál í kynningu


21.9.2012

Sorpurðun í landi Tjarnarlands á Fljótsdalshéraði

Mat á umhverfisáhrifum - Athugun Skipulagsstofnunar

Kynningartími stendur frá 21. september til 2. nóvember 2012

Verkís, f. h. Fljótsdalshéraðs, hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um sorpurðun í landi Tjarnarlands, allt að 68.000 tonn.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 21. september til 2. nóvember 2012 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Fljótsdalshéraðs og á Bókasafni Héraðsbúa, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslu má skoða hér.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 2. nóvember 2012 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.