Mál í kynningu


16.1.2013

Rannsóknaboranir í Eldvörpum, Grindavíkurbæ

Tillaga að matsáætlun í kynningu

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 4. febrúar 2013.

HS Orka hf. hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna borunar rannsóknarhola í Eldvörpum, Grindavíkurbæ. Tillaga að matsáætlun liggur frammi til kynningar frá 16. janúar til 4. febrúar 2013 hjá Skipulagsstofnun og á Netinu. Allir hafa rétt til að kynna sér tillöguna og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 4. febrúar 2013 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Unnt er að nálgast tillöguna hér.