Mál í kynningu


20.2.2013

Kísilmálmverksmiðja PCC á Bakka við Húsavík

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

Athugasemdafrestur er til 5. apríl 2013

Efla hf hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um kísilmálmverksmiðju PCC á Bakka við Húsavík, Norðurþingi.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá22. febrúar 2013 til 5. apríl 2013 á eftirtöldum stöðum: Á bókasafni Húsavíkur og í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.  Frummatsskýrsluna má nálgast hér.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 5. apríl 2013 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.  Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.

Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000 m.s.b.

Skipulagsstofnun

 

Athygli er vakin á því að framkvæmdaraðili verður með opið hús fyrir almenning og hagsmunaaðila til kynningar á verkefninu á Fosshóteli á Húsavík, laugardaginn 9. mars frá klukkan 14 – 18.