Mál í kynningu


6.3.2013

Þverárnáma í Eyjafjarðarsveit

Mat á umhverfisáhrifum - Athugun Skipulagsstofnunar

Kynningartími stendur frá 6. mars til 17. apríl 2013

Verkfræðistofa Norðurlands, f. h. Þverár-Golf ehf., hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Þverárnámu í Eyjafjarðarsveit.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 6. mars til 17. apríl 2013 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar, á bókasafni Eyjafjarðarsveitar og í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.

Frummatsskýrslu má skoða hér

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 17. apríl 2013 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum. Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000 með síðari breytingum.

Framkvæmdaraðili hyggst kynna framkvæmdina með opnu húsi í Golfskálanum að Þverá, Eyjafjarðarsveit, þriðjudaginn 12. mars 2013, kl. 17:00 – 18:00.

Skipulagsstofnun