Mál í kynningu


25.3.2013

Efnistaka í landi Skúta í Hörgársveit

Mat á umhverfisáhrifum - athugun Skipulagsstofnunar

Kynningartími frummatsskýrslu er frá 27. mars til 8. maí 2013

Skútaberg ehf., hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um efnistöku úr landi Skúta í Hörgársveit.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 27. mars til 8. maí 2013 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Hörgársveitar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.

Frummatsskýrslu má skoða hér.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 8. maí 2013 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.

Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000 með síðari breytingum.