Mál í kynningu


31.3.2014

Auglýsing um tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017, Kirkjuhvoll (Merkigerði 7) og Vesturgata 102

Bæjarstjórn Akraness auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akraness 2005-2017 samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að þjónustusvæði, Kirkjuhvoll (Merkigerði 7), er breytt í verslunar- og þjónustusvæði og lóðinni við Vesturgötu 102 sem nú er hluti af íbúðasvæði er einnig breytt í verslunar- og þjónustusvæði.

Breytingartillagan verður til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins á 1. hæð að Stillholti 16-18, Akranesi, frá og með 27. mars nk. til og með 11. maí 2014 og hjá Skipulagsstofnun á Laugavegi 166 í Reykjavík. Tillagan er einnig til kynningar á heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna til 11. maí 2014. Skila skal athugasemdum í þjónustuver Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18.


Runólfur Þ. Sigurðsson,
byggingar- og skipulagsfulltrúi

Hér má nálgast auglýsta tillögu