Mál í kynningu


31.5.2019

Suðurnesjalína 2

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

Frestur til að senda inn athugasemdir er til 18. júlí 2019

Landsnet hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Suðurnesjalinu 2.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 5. júní 2019 til 18. júlí 2019 á eftirtöldum stöðum: Á Bókasafni Hafnarfjarðar, skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.

Frummatsskýrslan er aðgengileg hér.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 18. júlí 2019 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.

Vakin er athygli á opnu húsi sem verður sem hér segir:

  • 11. júní kl. 17 til 19 í Álfabergi, Sveitarfélaginu Vogum
  • 12. júní kl. 17 til 19 að Ásvöllum í Hafnarfirði