Mál í kynningu


30.8.2019

Þórustaðanáma, efnistaka úr Ingólfsfjalli í landi Kjarrs, 2. áfangi, Sveitarfélaginu Ölfusi

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu

  • Þórustaðanáma

Frestur til athugasemda er til 16. september 2019.

Fossvélar ehf. hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum aukningar efnistöku úr Þórustaðanámu, Ingólfsfjalli í landi Kjarrs, 2. áfangi.

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 16. september 2019 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is