Mál í kynningu


28.6.2019

Tillaga að Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029

Athugasemdafrestur til 7. ágúst 2019

Skeiða- og Gnúpverjahreppur hefur auglýst tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi sveitarfélagsins, þ.e. Aðalskipulag Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029, samkvæmt 31. gr. skipulagslaga.

Tillagan er til sýnis á skrifstofu hreppsins í Árnesi, á skrifstofu skipulagsfulltrúa hjá Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita, Dalbraut 12 á Laugarvatni og hjá Skipulagsstofnun. Auk þess er hægt að nálgast aðalskipulagsgögn á www.skeidgnup.is og á www.utu.is.

Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Dalbraut 12, 840 Laugarvatni eða á netfangið runar@utu.is eigi síðar en 7. ágúst 2019.