Mál í kynningu


22.6.2017

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Akraness vegna Sementsreits

Athugasemdafrestur er til 8. ágúst 2017

Bæjarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 vegna breytingar á Sementsreit I1 og hluta hafnarsvæðis í íbúðar- og miðsvæði.

Tillagan er til sýnis í þjónustuveri kaupstaðarins, hjá Skipulagsstofnun og á vef sveitarfélagsins til 8. ágúst 2017.

Athugasemdir þurfa að berast í þjónustuver Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 300 Akranes eða á netfangið skipulag@akranes.is.

Vakin er athygli á að samtímis er auglýst tillaga að deiliskipulagi Sementsreits og breyting á deiliskipulagi Akraneshafnar.