Mál í kynningu


12.12.2018

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar, skotæfingasvæði í landi Hamars

Athugasemdafrestur er til 21. janúar 2019

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 vegna skotæfingasvæðis í landi Hamars.

Tillagan er til sýnis í Ráðhúsi Borgarbyggðar á vef sveitarfélagsins www.borgarbyggd.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast í Ráðhús Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 í Borgarnesi, eða á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is  eigi síðar en 21. janúar 2019.