Mál í kynningu


27.3.2017

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna verslunar og þjónustu að Varmalandi

Athugasemdafrestur er til 28. apríl 2017

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 vegna nýs verslunar og þjónustusvæðis (S8) í gamla Húsmæðraskólanum á Varmalandi.

Tillagan er til sýnis í Ráðhúsi Borgarbyggðar að Borgarbraut 14 Borgarnesi, hjá Skipulagsstofnun auk þess að vera aðgengileg á vef sveitarfélagsins .

Athugasemdir þurfa að berast í Ráðhús Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi eða á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is síðar en 28. apríl 2017.