Mál í kynningu


27.4.2018

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra, Hamragarðar/Seljalandsfoss og breytt lega Þórsmerkurvegar

Athugasemdafrestur er til 4. júní 2018

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 vegna 90 ha afþreyingar- og ferðamannasvæðis við Hamragarða og Seljalandsfoss og breyttrar legu Þórsmerkurvegar og göngu- og reiðleiðar á svæðinu. Samtímis er auglýst tillaga að deiliskipulagi svæðisins.

Tillagan er til sýnis til 4. júní 2018 á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Ormsvelli 1, 860 Hvolsvelli, á www.hvolsvollur.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Ormvelli 1, 860 Hvolsvelli eða á netfangið bygg@hvolsvollur.is eigi síðar en 4. júní 2018.