Mál í kynningu


1.2.2018

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur, Hraunbær-Bæjarháls

Athugasemdafrestur er til 13. mars 2018

Borgarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 þar sem landnotkun á 2,4 ha opnu svæði er breytt í íbúðabyggð á reit á milli Hraunbæjar og Bæjarháls. Á reitnum verður heimilt að reisa 200 íbúðir og að íbúðarbyggðin geti verið á 2-5 hæðum. Samhliða er auglýst deiliskipulagstillaga af svæðinu.

Tillagan er til sýnis í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, á reykjavik.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast til umhverfis- og skipulagssviðs, Borgartúni 12-14 eða á netfangið skipulag@reykjavik.is eigi síðar en 13. mars 2018.