Mál í kynningu


3.1.2019

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna stækkunar hafnarsvæðis í Sundahöfn

Athugasemdafrestur er til 1. febrúar 2019

Reykjavíkurborg hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 vegna Sundahafnar. Í tillögunni felst að hafnarsvæði í Sundahöfn (H4) er stækkað með landfyllingum, annars vegar við Klettagarða (3 ha) og hins vegar við Skarfabakka-Kleppsbakka (2 ha).

Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar Borgartúni, á reykjavik.is, adalskipulag.is og hjá Skipulagsstofnun, til og með 1. febrúar.

Athugasemdir þurfa að berast til Umhverfis- og skipulagssviðs, Borgartúni 12-14 eða á netfangið, skipulag@reykjavik.is eigi síðar en 1. febrúar 2019.