Mál í kynningu


29.5.2017

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps, svæði fyrir verslun og þjónustu austan við Árnes

Athugasemdafrestur er til 6. júlí 2017

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016 vegna uppbyggingu ferðaþjónustu austan við Árnes.  

Tillagan er aðgengileg á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni, á sbf.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu skipulagsfulltrúa eigi síðar en 6. júlí 2017.