Mál í kynningu


19.3.2018

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Skorradalshrepps, Indriðastaðir, Mófellsstaðir

Athugasemdafrestur er til 30. apríl 2018

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022 í landi Indriðastaða og Mófellsstaða vegna frístundabyggðar, efnistökusvæða og vatnsverndar.

Tillagan er til sýnis til 30. apríl 2018 á skrifstofu hreppsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes, á heimasíðu hreppsins skorradalur.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu hreppsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes eða á netfangið skipulag@skorradalur.is eigi síðar en 30. apríl 2018.