Mál í kynningu


19.6.2017

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Þingeyjarsveitar, Rangá í Köldukinn

Athugasemdafrestur er til 28. júlí 2017

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010-2022 vegna breytingar á landnotkun á 9 ha svæði að Rangá í Köldukinn úr landbúnaðarsvæði í verslunar- og þjónustusvæði vegna ferðaþjónustu.

Tillagan er til sýnis á skrifstofu Þingeyjarsveitar, á vef sveitarfélagsins og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu Þingeyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugar eða á netfangið bjarni@thingeyjarsveit.is eigi síðar en 28. júlí 2017.