Mál í kynningu


28.5.2018

Vestfjarðavegur um Dynjandisheiði og Bíldudalsvegur frá Bíldudalsflugvelli að Vestfjarðavegi á Dynjandisheiði

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu

  • Veglínur

Frestur til athugasemda er til 15. júní 2018.

Vegagerðin hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði og Bíldudalsvegar frá Bíldudalsflugvelli að Vestfjarðavegi á Dynjandisheiði í Vesturbyggð og Ísafjarðarbæ.

Tillaga að matsáætlun og fylgiskjöl eru aðgengileg hér: 

Einnig má nálgast tillöguna hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 15. júní 2018 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.