Útgefið efni

Hér eru birtar leiðbeiningar sem Skipulagsstofnun hefur gefið út eða staðið að í samráði við aðra aðila. Þá eru hér birtar skýrslur stofnunarinnar og pistlar um skipulagsmál líðandi stundar. Einnig er hér að finna þær sérfræðiskýrslur sem hlotið hafa styrk úr Rannsóknar- og þróunarsjóði stofnunarinnar. Alla útgáfu tengda vinnslu landsskipulagsstefnu er hinsvegar að finna á www.landsskipulag.is.

Útgefið efni

Um skipulag bæja - Aldarspegill

Annað

Gefið út á 100 ára útgáfuafmæli rits Guðmundar Hannessonar læknis „Um skipulag bæja“ árið 2016. „Um skipulag bæja – Aldarspegill“ hefur að geyma endurútgáfu á  riti Guðmundar ásamt greinasafninu „Aldarspegill – samtal við Guðmund Hannesson“.

Rit Guðmundar „Um skipulag bæja“ hafði með margvíslegum hætti áhrif á þróun skipulagsmála hér á landi og nýttist sem leiðbeiningarit í þeirri miklu skipulagsvinnu sem unnin var fyrir þéttbýlisstaði landsins fram að seinna stríði. Þó mikið vatn hafi runnið til sjávar síðan rit Guðmundar kom út, og bæir landsins tekið breytingum, á rit hans ennþá fullt erindi í umræðu um skipulagsmál.

Í „Aldarspegli“ er beint sjónum að ólíkum viðfangsefnum skipulagsmála sem Guðmundur fjallaði um í riti sínu. Ásdís Hlökk Theodórsdóttir fjallar um bæjarmynd og byggðamynstur, Pétur H. Ármannsson um húsagerð og hönnun, Salvör Jónsdóttir skoðar félagslega og efnahagslega þætti skipulagsmála og Dagur B. Eggertsson skrifar um tengsl lýðheilsu og skipulags. Loks bregða Páll Pétursson og Sigrún Magnúsdóttir ljósi á persónu og lífshlaup Guðmundar Hannessonar.

Ritstjórar útgáfunnar eru Ásdís Hlökk Theodórsdóttir og Sigurður Svavarsson.

Útgáfan er fáanleg hjá Skipulagsstofnun og Hinu íslenska bókmenntafélagi.

Útgefið: 2016