Almannavarnir og skipulag

Að byggja og búa í lifandi landi og náttúru

  • 17.5.2019

Opin ráðstefna um almannavarnir og skipulag sem haldin er af Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, lögreglustjóranum á Suðurlandi og lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum í samstarfi við Skipulagsstofnun. 

Haldin á Hótel Selfossi, 17. maí 2019, kl. 09.00-15.00.

Skráning

Dagskrá 

9:00 

Kaffi og skráning

9:30

Ráðstefna opnuð - Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum

9:35

Setning ráðstefnu

  Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, dómsmálaráðherra

9:45

Náttúruvá á Suðurlandi

 

Gerð grein fyrir náttúruvá á Suðurlandi og Vestmannaeyjum, horft til afleiðinga og tíðni. Umsagnir og hvað virkar og hvað vantar. Hvað þarf að bæta í umsagnarferli vegna skipulagsmála.

Jórunn Harðardóttir Veðurstofu Íslands

 10:25

Sýn á almannavarnir

 

Forvarnarþáttur almannavarna með hvaða hætti er hægt að draga úr líkum á tjóni vegna skipulags. Hver er staðan í dag og hvað þarf að bæta, reynsla og dæmi.

Víðir Reynisson, Lögreglunni á Suðurlandi (almannavörnum)

 10:45

Skipulag byggðar með tilliti til náttúruvár

 Ásdís Hlökk Theodórsdóttir forstjóri Skipulagsstofnunar

 11:05

Loftslagsbreytingar – áhrif á skipulag

 

Við hverju má búast og hvaða áhrif getur það haft á skipulag á Suðurlandi til lengri tíma á Suðurlandi (sjávarstaða, bráðnun jökla, hlýnun andrúmslofts o.s.fr.).

Halldór Björnsson Veðurstofu Íslands

 11:30

Tryggingar og náttúruvá

 

Hvaða áhrif hefur það á tryggingar mannvirkja sem byggð eru á náttúruhamfarasvæði. Lög og skyldur Náttúruhamfaratrygginga Íslands.

Hulda Ragnheiður Árnadóttir Náttúruhamfaratryggingum Íslands

12:00 

Matarhlé – Léttur hádegisverður á Hótel Selfossi í boði SASS

13:00

Sjónarmið – frá skipulagslegu viðhorfi

 

Manngerðir jarðskjálftar

Áhrif og aðkoma skipulagsyfirvalda sveitarfélaga, hvað má betur fara.
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar

 

Sumarbústaðasvæði

Úttekt sveitarfélagsins, lærdómur og áhrif á skipulag og hvað má bæta.
Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar

 

Skógrækt – skipulag

Skógrækt með skipulag, öryggi og eldvarnir í huga.
Björn B. Jónsson, verkefnastjóri hjá Skógræktinni
 

Varúðarsvæði og náttúruvá

Áhrif á skipulag.
Sigurður Smári Benónýsson, skipulags- og byggingarfulltrúi Vestmannaeyjabæjar
 

Eldgosavá – jökulflóð – berghlaup

Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri Sveitarfélaginu Hornafirði

 14:00

Pallborð – náttúruvá og skipulagsmál

 Spurningar frá ráðstefnuhaldara og úr sal um það sem fram hefur komið á ráðstefnunni. Hverju þarf að huga betur að og hver eiga að vera næstu skref?

 

Þátttakendur í pallborði:

Eva Björk Harðardóttir, formaður stjórnar SASS 
Halldór Björnsson, Veðurstofa Íslands 
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, Skipulagsstofnun 
Ásta Stefánsdóttir, sveitarfélögin
Víðir Reynisson, Almannavarnir

 

Ráðstefnuslit

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra