Liðnir viðburðir

Samráðsfundur um drög að landsskipulagsstefnu 2013-2024

Icelandair Hótel Reykjavík Natura (áður Hótel Loftleiðir)

  • 17.8.2012, 9:00 - 16:00, Icelandair Hotel Reykjavik Natura
Skipulagsstofnun heldur samráðsfund um drög að landsskipulagsstefnu 17. ágúst næstkomandi. Á fundinum verða kynnt drög að fyrstu landsskipulagsstefnu og einnig gefst þátttakendum færi á að fjalla um og eftir atvikum hafa áhrif á stefnuna.

Dagskráin verður auglýst síðar en lagt er upp með að dagurinn hafi einkenni opins húss þar sem þátttakendur geta valið sér viðfangsefni og aðferð til að fjalla um drögin. Markmiðið er að sem flestir sem málið varðar og þeir sem hafa áhuga á gerð landsskipulagsstefnu hafi tæki færi til að taka þátt og hafa áhrif.

  • 17.8.2012 9:00 - 16:00 - Icelandair Hótel Reykjavík Natura (áður Hótel Loftleiðir)