Liðnir viðburðir

Kynningarfundur um tillögu að landsskipulagsstefnu 2013-2024

  • 18.10.2012
Skipulagsstofnun mun halda fund á Egilsstöðum 18. október í Austurbrú, Tjarnarbraut 39 þar sem kynnt verður tillaga að landsskipulagsstefnu 2013 – 2024 sem auglýst hefur verið samkvæmt 11. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Á kynningarfundunum munu Stefán Thors og Einar Jónsson kynna:

• Markmið og áhrif landsskipulagsstefnu og staða í skipulagskerfinu

• Ferli landsskipulagsstefnu og samráð

• Áherslur ráðherra fyrir gerð landsskipulagsstefnu

• Helstu forsendur, sviðsmyndir og afmörkun stefnumótunar

• Stefna

     Skipulagsmál á miðhálendi Íslands

     Búsetumynstur og dreifing byggðar

     Skipulag á haf- og strandsvæðum

• Umhverfismat landsskipulagsstefnu 2013-2024