Fréttir


29.5.2018

Auglýsing um Aðalskipulag Bláskógabyggðar 2015-2027

Skipulagsstofnun staðfesti þann 25. maí 2018 Aðalskipulag Bláskógabyggðar 2015-2027, sem samþykkt var í sveitarstjórn Bláskógabyggðar 5. apríl 2018.

Málsmeðferð var samkvæmt 30.-32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Við gildistöku Aðalskipulags Bláskógabyggðar 2015-2027 fellur úr gildi Aðalskipulag Bláskógabyggðar, Þingvallasveit 2004-2016 sem staðfest var 17. maí 2006 og Aðalskipulag Laugarvatnshrepps 2000-2012 og Aðalskipulag Biskupstungnahrepps 2000-2012, sem staðfest voru 22. nóvember 2001 ásamt síðari breytingum.


Hægt verður að nálgast nýtt aðalskipulag á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.