Fréttir


  • Reykjanesvirkjun

26.2.2016

Breytingar á stærð og staðsetningu mannvirkja við Reykjanesvirkjun, Reykjanesbæ

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að breytingar á staðsetningu og stærð mannvirkja Reykjanesvirkjunar í Reykjanesbæ skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík. 

Hana er einnig að finna hér

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til  úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála  og er kærufrestur til 29. mars 2016.