Fréttir


1.7.2016

Eyðing á áhættuvefjum úr sláturdýrum við sláturhús B. Jensen ehf. í Hörgársveit

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að uppsetning á búnaði til eyðingar á áhættuvefjum úr sláturdýrum við sláturhús B. Jensen ehf. í Hörgársveit, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000. Ákvörðunin er aðgengileg hér .

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 29. júlí 2016.