Fréttir


  • Hamraneslínur yfirlitsmynd

23.7.2018

Færsla Hamraneslína 1 og 2 í Hafnarfirði

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að tímabundin færsla Hamraneslína 1 og 2 í Hafnarfirði skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér .

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 24. ágúst 2018.