Fréttir


  • Borði með kennimerki skipulags á haf- og strandsvæðum

6.5.2020

Gerð strandsvæðisskipulags á Austfjörðum og Vestfjörðum

Lýsing verkefnis og samráðsvefsjá

Hafin er vinna við gerð strandsvæðisskipulags á Vestfjörðum og Austfjörðum á grundvelli laga um skipulag haf- og strandsvæða. Svæðisráð fyrir hvort svæði, skipað af umhverfis- og auðlindaráðherra, bera ábyrgð á gerð viðkomandi strandsvæðisskipulags. Skipulagsstofnun annast gerð skipulagsins í umboði svæðisráðanna.

Lýsing

Svæðisráð á Austfjörðum og á Vestfjörðum auglýsa samtímis lýsingar fyrir gerð strandsvæðisskipulags á svæðunum. Þar er gerð grein fyrir hvernig fyrirhugað er að standa að skipulagsvinnunni. Lýsingarnar eru aðgengilegar hjá Skipulagsstofnun og á hafskipulag.is frá 7. maí til 1. júní.

Lýsing fyrir gerð strandsvæðisskipulags á Austfjörðum

Lýsing fyrir gerð strandsvæðisskipulags á Vestfjörðum

Nálgast má prentað eintak hjá Skipulagsstofnun.

Allir eru hvattir til að kynna sér efni lýsinganna og koma á framfæri ábendingum um nálgun og efnistök í skipulagsvinnunni. Ábendingar þurfa að vera skriflegar og má koma á framfæri bréfleiðis til Skipulagsstofnunar, með tölvupósti á hafskipulag@skipulag.is eða á athugasemdagátt á hafskipulag.is. Frestur til að koma á framfæri ábendingum er til 1. júní 2020.

Lýsing er kynnt samkvæmt 11. gr. laga um skipulag haf- og strandsvæða.

Samráðsvefsjá

Opnuð hefur verið samráðsvefsjá um gerð strandsvæðisskipulags á Austfjörðum og Vestfjörðum. Þar er hægt er að koma á framfæri upplýsingum um hvernig svæðin eru nýtt til afþreyingar, ferðaþjónustu og nytja ásamt áherslum varðandi styrkleika svæðanna, áskoranir og tækifæri. Allir eru hvattir til þess að taka þátt. Vefsjáin verður opin til 4. júní. Upplýsingar sem safnast í gegnum vefsjánna verða nýttar í vinnunni framundan við gerð strandsvæðisskipulags á Austfjörðum og Vestfjörðum.

Samráðsvefsjá

Kynningarfundir

Fyrirhuguð vinna við gerð strandsvæðisskipulags á Austfjörðum og Vestfjörðum verður kynnt á veffundum og streymt á Facebook-síðu Skipulagsstofnunar á eftirfarandi tímum:

Allir sem hafa áhuga eru hvattir til að taka þátt í fundunum. Nánari upplýsingar um fundina má nálgast hér.

Til stóð að halda samráðsfundi samhliða kynningu á lýsingu en vegna samkomutakmarkana hefur þeim verið frestað. Samráðsfundirnir verða haldnir haustið 2020 og verða þeir auglýstir þegar nær dregur. Á fundunum verður þátttakendum boðið til samtals um stöðu svæðisins, styrkleika og áskoranir og leitað eftir ábendingum þátttakenda um núverandi og framtíðar nýtingu þess. Fundirnir verða öllum opnir.

Hafskipulag.is

Jafnframt er athygli vakin á að á nýju vefsvæði skipulags á haf- og strandsvæðum, hafskipulag.is má nálgast frekari upplýsingar um skipulag á haf- og strandsvæðum ásamt gerð strandsvæðisskipulags og framvindu vinnunnar á hvoru svæði.