Fréttir


9.7.2015

Aukin framleiðsla á regnbogasilungi eða laxi um 2.000 tonn í Dýrafirði

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmdar

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að aukin framleiðsla Dýrfisks ehf. á regnbogasilungi eða laxi í Dýrafirði skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 7. ágúst 2015.