Fréttir


20.9.2011

Natríumklóratverksmiðja Kemíra á Bakka við Húsavík, Norðurþingi

Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur úrskurðað að ofangreind framkvæmd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að natríumklóratverksmiðja Kemíra á Bakka við Húsavík, Norðurþingi, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 107/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík.  Hana er einnig að finna hér.  Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur  til 24. október 2011.