Fréttir


1.12.2011

Varnargarðar í Jökulsá á Fjöllum, við Herðubreiðarlindir

Ákvörðun Skipulagsstofnunar um tilkynningaskylda framkvæmd

Skipulagsstofnun hefur ákvarðað að framkvæmdirnar skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að bygging varnargarða við Jökulsá á Fjöllum, við Herðubreiðarlindir í Skútustaðahreppi skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.  Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 30. desember 2011.