Fréttir


3.4.2012

Samráðsfundur Skipulagsstofnunar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélaga 2012

Árlegur samráðsfundur Skipulagsstofnunar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélaganna verður haldinn 26. og 27. apríl 2012 á Hellu, Rangárþingi ytra. Drög að dagskrá má sjá hér en endanleg dagskrá verður send út síðar og upplýsingar um fundarstað.

Fundurinn er ætlaður kjörnum fulltrúum og starfsmönnum sveitarfélaganna í skipulagsmálum.

Fundurinn er þátttakendum að kostnaðarlausu en þeir þurfa að greiða sjálfir fyrir kvöldverð og gistingu.
Þátttakendur eru hvattir til að skrá sig á skráningarformið hér að neðan fyrir 19. apríl n.k.

Gisting

Þátttakendur þurfa sjálfir að sjá um að panta og greiða gistingu.

Eftirfarandi gisting er í boði:

Mosfell Fosshótel Hellu (1. og 2. manna herbergi), vinsamlega hafið beint samband í gegnum netfang: mosfellehf@simnet.is

Árhús, netfang: mailto:arhus@arhus.is

Þátttakendur eru hvattir til að panta gistingu fyrir 19. apríl n.k. Vinsamlega pantið í gegnum ofangreind netföng og ritið „Vegna Skipulagsstofnunar" í viðfangið (subject).