Fréttir


25.4.2012

Sorpurðun í landi Tjarnarlands á Fljótsdalshéraði

Tillaga að matsáætlun í kynningu

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 14. maí 2012

Verkís, f.h. Fljótsdalshéraðs, hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna sorpurðunar í landi Tjarnarlands á Fljótsdalshéraði. Tillagan liggur frammi til kynningar frá 26. apríl 2012 til 14. maí 2012 hjá Skipulagsstofnun og á Netinu. 

Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 14. maí 2012 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Unnt að nálgast tillöguna hér