Fréttir


9.10.2012

Lagning 66 og 19 kV jarðstrengja og ljósleiðara, á milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar

Mat á umhverfisárhifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að lagning 66 og 19 kV jarðstrengja og ljósleiðara á milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar, Snæfellsbæ og Grundarfjarðarbæ skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er til 10. nóvmeber 2012.